23.10.2025 kl. 14:37

Óreiðuskoðanir dagsins - 20251023

Fólk meðal almennings hlustar aldrei á upptökur með Úkróforsetanum eða hlustar á, því almenningi þykir hann vera sá vibbi sem hann er. En þú sérð engar skoðana/áhorfs kannanir varðandi þetta.

Ef þessi yrðing mín stenst, miðað við að elítan sem nefnir sjálfa sig leiðtoga, elskar hann; sækjast sér um líkir.

Breskur læknir handtekin og færð í járn í Bretalandi - systurríki Lýðveldisins - fyrir færslu sem hún hafði ritað á X, varðandi þjóðarmorð útvalda hyskisins. Hundruðir dæmdir í allt að tveggja ára fangelsi, undanfarið, í kóngsins sæluríki, fyrir færslur á FB og X. Ekkert um þessa ríkisglæpi, hér á Stórastamöggins.

Seðlabankastjóri Lýðveldisins ræddi á dögunum hversu erfitt það væri fyrir ungt fólk og annað fólk að eignast íbúð vegna reglnanna sem hann - af tilviljun - samdi sjálfur ...

Í samtali Lavrov og Rubio á dögunum, kom í ljós að Nató/Usa býður Rússum uppdrátt að nýjum Versala samningi í tólf atriðum ..

... og bíddu nú við, Bill Gates, sem á núna höfundarrétt breyttu genunum þínum, ræddi á dögunum að líklega væri óþarft að örmerka þig því nú biði tæknin upp á að ná sama árangri með húðflúri, ekki nóg með það - svo vitnað sé í Dr. Farrell - mætti nota húðflúrið til að láta elítuna vita ekki aðeins þegar þú þarft nú geðlyf, heldur að snöffa þér með Human-Eutanasia þegar fram í sækir.

Á sama tíma stundar Bandaríska heimsveldið að sökkva smábátum fiskimanna hér og þar, rétt eins og þegar Churchill sannfærði Íslenska Quislínga um nauðsyn þess að Bretar og síðar Kanar, myndu vernda okkur hér á skerinu, vegna stríðsáróðurs sem enginn fótur var fyrir, þá frekar en nú.

Já: það voru ekki Þýðverjar sem sökktu Íslenskum fiskibátum, heldur Breskir kafbátar. Þetta er hægt að sanna; rétt eins og sannað var fyrir þér að sprauturnar væru eiturglundur.

Eins og þú veist líklega, logar allt í ófriði um öll Vesturlönd, Írland var að bætast í hópinn, og bíddu nú við, Bandaríska sambandsríkið og borgarastríðið þar í landi, með herinn útum allar borgir í trássi við lög, Ríkisstjórnin óstarfhæf í allt að tvær vikur ... og hey; mótmæli um allt Bretland vegna stafrænu skilríkjanna sem Íslendingar fengu sér þegjandi og hljóðalaust fyrir hátt í áratug og Kalli kóngur gerir nú að skyldu þar í landi ...

a) Samsæriskenning eða b) Samsærisgreining, eða því sem næst bein tilvitnun?

Hvar hefurðu verið síðan musteristjaldið var rifið 2019?

Eins og eikkur sagði: You cannot make this shite up.