23.10.2025 kl. 09:29

Ekkert að frétta sosum

Elítan fer offari, yfir að félagslega ríkistúngumálið sé í rénun, og Ríkið eigi að reddessu. Arkítektúr (nýyrði óskast) borgarinnar heldur áfram að spretta fram eins og gorkúlur í túni sem halda sig berserkjasveppa á sterum. Elítan heldur áfram að skóflokkur inn í ESB og Stríðið eins og enginn sé morgundagurinn, eða í ósk um að enginn sé vitjunartíminn.

Annars allt í fína.

 

 

En aftur að þessu með fjörbrot Priskíanusar, sem enginn minnist á, enda málið dáið. Elítan kyrjar í kór, Lax og aftur Lax, eins og það væri lausnin við öllu, eftir fleiri reglugerðum seldum í enn flóknari textum með enn lengri orðum.

Leiðinlegt mál er dáið mál.

Sýndu mér lifandi mál og ég syng því bæði stúf og rím.

Hver veit, jafnvel ... tja, vittu til; Pólska afgreiðslufólkið skilur Íslensku þó það talanekki, og sumhver, annarrar kynslóðar, talar hana betur en innfæddu börnin.

... maður kemstaðessu ef maður nennir að ræða við þau eins og fólk en ekki Fólk.

Eitt sinn fékk minn stóran plús og eftir það fyrirmyndar afgreiðslu, því hann fattaði þegar stúlkan - sem annars talar fína Íslensku, alin hér upp - ræddi við konuna á undan á Tagalog. 

Veit ekki hvernig Tagalog hljómar, giskaði bara. 

Pólverjum finnst t.d. kúl ef þeir koma frá - austar en Varsjá - og maður segir "nær Brest?" Þó maður viti ekkert hvar það er. 

 

 

 

Minn tók upp á því fyrir tveim árum að segja hér og þar "Ríkisstjórnin elskar þig" eða "Elítan er vitur" og stundum "Elítan er góð" en fólk sem trúði á bæði Ríkið og -elítuna-  [í blindni] og mætti roggið í sprauturnar, hvæsir við þessu. 

Mér finnst það fyndið.

 

Mannverur og Manneskjur* eiga sex fleti sameiginlega, í þessari röð: 1) Kynlíf/Framhjáhöld, 2) Matur/Græðgi, 3) Öryggi/Blórar, 4) Framför/Gróði og 5) Hégómi/Yfirborð. Allir hafa gaman af þessum fimm flötum, og þú getur spilað á þá eins og orgel - ef þú nennir því. Það eina sem þarf er að skilja Egóið eftir heima. Atriði 6) er trú á Musterið/Kredduna, hvers nafni það hjúpar (Encapsulates) sig hverju sinni. Þú getur ekki haggað kreddu, sama hvað þú veltir borðum með reipi. En fólk fattar ef þú stingur alla sex prjónana samtímis í [vúdú] dúkkuna sem það heldur sig vera, því fólk hefur [smá] húmor undir skurninni.

Skemmtileg íþrótt.

Sjöundi flöturinn er til, en hann er í fríi.

Lax og aftur Lax.

Æri Tobbi og Sobbeggi Afi ... eða þannig.

 

---

Minn ritaði athugasemd í morgun - í stíl við margt sem hér kemur fram - við ágæta (eldri merking) færslu Magnúsar Sigurðssonar. Athugasemdin er nær því að vera færsla, svo ég fæ hana lánaða hingað.

Sjá hér.

Vil helst ekki endurtaka stunguna varðandi Bubba og Megas, en stend þó við. En vittu til, síðan Eurovision var [ríkis-]innleitt á Íslandi, dó Íslensk tónlist. Ríki er nauðsynlegt óumflýjanlegt, því það leysir ákveðin vandamál, en hver er munurinn á Feitu ríki sem setja má í megrun eða Djúpu ríki sem speglar möru ill-rýnanlegrar dulvitundar? Hver væru réttindi Ríkis og skyldur, ef einhver hefði taumhald á því?

Enginn munur er þannig á Trúarbrögðum og Ríki - og mætti því nefna hvorutveggja nýyrðinu Kreddukerfi (Dogmatic Systems) - þegar Kreddukerfi fær öfgatilbeiðslu í formi Valdhyggju, Félagshyggju og Efnishyggju, sem yfirtekur vitund og heimsmynd allra þeirra sem kreddan situr ofaná, fer allt í voða.

Við erum í voða; sem speglast í Sprautunni, Stríðinu og Öfgakerfinu, en aðeins fjölæringjar og aldingjar geta greint hina ósýnilegu eða torræðu frumspeki sem veldur Ástandinu (The State).

Það hlustar enginn í Siðfalli (Implosion), á Fjölæringa (Perennialists), Frumspekinga (Metaphysicians) og Aldingja (Sages), fyrr en of seint. --Sagan

Sex sinnum sex sinnum sex ... óendanleg mannleg hégómahyggja ...

Þú veist ekki hvernig þesar þrjár hyggjur eru skilgreindar eða hvernig þær staðfærast (Manifest) hverju sinni. Það er eitt sjúkdóms merkjanna. Við höfum farið þennan veg í Vitnisburði sem við nefnum Arkívið, vitjunartími er hafinn og Guð sendi viðvörun í tíma.

Níneve tók mark á vitjunartíma. Jónas vildi ekki fara þangað, en Hvalur leiðrétti Jonna, svo hann sá að sér. Hann fór í fýlu þegar siðmenning Níneve iðraðist af eigin siðfalli. Jónas fattaði fólk, og hafði enga trú á mann-verum. Guð leiðrétti Jónas. Jonni vitnaði síðar um eigin flónsku. 

Okkar tímar ekki.

Já ég á við alla heimsbyggðina, jafnt okkar, í þessu síðasta, og innlenda -elítan- er hluti Elítunnar. Hugur þinn glæðist og lifnar við Bæn, Iðrun, Vitnisburð og Fyrirgefningu. Hvernig ræsir þú bíl og setur í gír? Hver stjórnar bifreið á ferð?

 

Úr einu í annað: Kom fram í fréttum Fjölmellumiðla, hversu mörg friðelskandi Nató/Esb ríki hótuðu að skjóta Rússnesku forsetaflugvélina niður ef forseti Rússlands myndi voga sér til Ungverjalands að ræða frið!

 

 

Lifun

 

"Auðséð er, að bragregla er ekki trygging þess að kvæði sé mikils virði, en alltaf er leitt að sjá fagra hugsun í tötrum. Þarflegt væri að hafa aðra bók um höfuðeinkenni góðra kvæða, önnur en bragreglur. Hvað bíður síns tíma." --Sveinbjörn Beinteinsson, Bragfræði og Háttatal

 

* Við gerum stóran greinarmun á manngreyjum (Humanoids: mann-verur (Human Beings) félaga Darwins og Marx, eru ekki hið sama og mann-eskjur (Humans) Guðs og hans Vætta, mann-verur eru mann-kyn (Human Kind) og mann-eskjur eru mann-fólk (Humanity).