14.8.2025 kl. 22:24

Kanntu að gósta?

Þú setur fimm hundruð prósent tolla á allar Bandarískar vörur og 400 prósent á allar ESB vörur, og gefur út styrki til innlendra fyrirtækja sem sækja á markaði utan Bandaríkjanna og Evrópu, og ferð síðan í tíu daga frí til Búrkína Fasó.

Þetterekkertflókið.

Samanber úr tengdri frétt:

"... hvernig megi bregðast við ..." og "Stjórn­völd hafa óskað eft­ir sam­tali við banda­rísk stjórn­völd en eng­in svör hafa borist." og "ljóst að Banda­ríkja­stjórn er að fókusera á ..."

Þegar aumingjaháttur og lágkúra er orðin að elítuíþrótt og QR-kótar og svæpað sinnuleysi "þjóðarinnar" orðin að gaddavírsgirðingu stafræna gúlagsins, verður öll þjóðarsúpan að vilpu.

 

 

 

Þú veist að Búrkína gerði upp allar erlendar skuldir á undanförnum tveim árum og tvöfaldaði þjóðarframleiðsluna, eþaggi?

 

* Fyrir þá sem ekki kannast við grínsögnina "að gósta" þá er um slangur að ræða úr ensku "to ghost some one."