23.7.2025 kl. 18:08

Viltu fá danskan kóng?

Íslendingar vilja almennt ekki fá aftur danska kónginn, þó allir viti þeir - sem minn hefur rætt við - að forsetinn var vélaður inn á Þjóðina og að þeir sem héldu sig við kónginn s.s. Grænland og Færeyjar, græddu feitt meðan við mörlandar töpuðum öllu, þrívegis.

Eða næstum öllu.

 

 

Hitt er annað, að sömu fjölskyldur, ættir og blóðlínur, og gáfu okkur forsetana sem aldrei hafa farið að Stjórnarskránni, eru staðráðnar að gera ykkur Lýðveldis Íslendinga (við Þjóðveldisfólk erum ekki memm) að ESBfylki.

Þá færðu ekki danskan kóng, heldur Evrópska Úrsúlu. Grínlaust. Þér væri betra að flýja strax, en þú hefur nú vitað það í fimm ár. Eþaggi?

Engin fagleg ábyrg umræða hefur verið á Íslandi síðan 2009 - eða undanfarin sextán ár - á því hvað Íslendingar græða eða hvað þeir tapa á því að sjötíu prósent Íslenskra laga séu samin í Strassbúrg og framkvæmd í Brussel, eða hversu feitt má græða á fullkomnu frelsi frá ESB og algjöru hlutleysi er varðar Nató.

Hins vegar mikið verið um áróður, útúrdúra og orðhengslabrag.

Íslenska Lýðveldið er eina ríkið í Evrópu þar sem engin opinber umræða fer fram um að meirihluti borgara álfunnar vill fleygja ESB varginum, og því segjum við að Lýgveldið muni einn daginn veita ESB pólitískt hæli.

Manstu eftir bloggþræðinum þar sem einn góðborgari fór yfir alla lagalista Lýðveldisins frá 1993 og tók saman fjölda laga hvers árs og setti upp í töflu, innlend lög og erlend (ólögmæt) lög?  Nei, ég ekki heldur; en ég hef þó skannað lagalistann að hluta og talið saman í huganum og brugðið.

Við erum óupplýst með öllu og þau okkar sem vilja ræða málin hlutbundið, hverfa í stormi múgsefjunar og skvaldurs. Hver sá sem hefur kynnt sér málið, varðandi ESB inngöngu, veit að allar aðildarviðræður eru heiðaþoka (Smokescreen), því ESB krefst algjörrar undirgefni fylkjanna og alls valds yfir öllum auðlindum þeirra.

Einfalda spurningin er því þessi:

Hverra hagsmuna allir flokkar Lýðveldisins gæta síðan 2008 - þrátt fyrir allan sinn fagurgala og útskýringar - því allir - já allir - hafa þeir unnið að og gætt hagsuna ESB og Nató, og þaggað kyrfilega og jaðarsett alla viðleitni til hlutbundinnar (Objective) umræðu með greiningum.

Greiningar eru vissulega til, en þú þarft að kunna að gramsa eftir þeim, og nenna því. Hið góða við það sem hér er á ferðinni, er að "Lýgveldið" mun ekki lifa þetta af, og Þjóðveldið endurrísa mun hraðar, og núverandi elíta þarf að bursta skóna sína ef hún ætlar að nota sömu lygar og rangfærslur þar, og hún hefur stundað síðan 1944.

Annars bara allt gott.

Vættir vita hvernig þetta skal gerast, þeir vita að ef stóri þjóðveldisfundurinn sem spáð var - þegar 144 þúsund borgarar munu koma saman á Þingvöllum og endurreisa það sem rænt var af þeim - gerist of snemma og of ástríðufullt, mun Nató maskínan drepa alla á staðnum með stórum sprengjuflugvélum.

Vættir gæta þessa, og varðveita glæðingu hugsjónar þeirrar er landi og þjóð er best fleydd.

Já, fleydd. Það er gleymt hugtak.

Vættir annarra landa bíða þessa í andagt, því steinninn fer úr hugar stíflu alls hnattarins, þegar ljósið í norðri verður tendrað á ný.

Sumt er eins og það er, en ekki öðruvísi. Stundum Er, Verður.

Þannig séð, er fyrirsögn tengdrar fréttar, rétt. Það var óvart.

skilurðu hvers vegna allar elítur heimsins - eða samlagsandar þeirra - sturluðust þegar Vitnisburði lauk. Eða ekki. Fer eftir sprautufjölda. Eða eikkuru.