21.6.2026 kl. 12:11
- snúður púður lúður -
Fyrir tæpum tvöhundruð árum, var fólk að byrja að fatta, Ríkið, Bankana og Fjölþjóða samsteypurnar og Þverþjóðlegar stofnanir, og vildi bregðast við þeim. Þá fann elítan upp tækni: Seljum fólki hugmyndina að Marxisma, sem berjist gegn smákapítalístum (millistétt) í nærsveitum þess.
Bætum við "lýðræðisfléttu" þannig að fólk kjósi bastarða (launbörn) aðalsættanna í stjórnmálin, þannig að fólk velur "lista" en getur ekki "valið á listann."
Smámsaman byrjuðu sumir að sjá í gegnum fléttuna og þá fundu Marxistar og Lýðræðisbastarðar upp nýja fléttu; við stýrum skólunum sem kenna* fólki að hugsa ... og leikfléttan virkar betur en öll önnur trúarbrögð* allra tíma létu sig dreyma um. Stundum þarf þó að skerpáessu með ýmsum uppákomum, og tengdum umræðum sem stýrt er af Útsendurum, Flugumennum, Hliðvörðum og Skellibjöllum (Shills), sem gerir taflið skemmtilegra.
Þetta er soldið svipað og þegar Satan fattaði, að með Efnishyggjunni gætann sannfært um að hann væri ekki til og þannig slegið vopn trúarinnar flöt (sjá Efesusbréfið), en á bak við þetta, samanber þegar hann benti Jósúa Maríusyni á að hann á og veldur öllum dýrðum (Splendours) mannheima, að sannfæra þá sem sjá í gegnum fyrri fléttuna, um að þeir séu ekki þegar dánir og vistaðir í Hel, og að þeir sem spila elítuna, séu fólk en ekki Djinn*.
Anna Jónsdóttir, frá Hreiðarkoti, sem skrifaði undir skáldaheitinu Shakespeare, fattaði þetta, þegar hún reit "veröldin öll er leiksvið, og vér aðeins leikarar."
Sannaðu að Shakespeare hafi verið til, og reyndu í leiðinni að finna handritin hans. Og hver veit, kannski fattarðu Arne Arneus skúespilið. Dóri Lax fattaði, og þú veizt nú hvernig hann var.
Fyrir þá sem fatta ekkert og skilja minna,
frá 325 til 1551 var það hefð, að tala niður
til áheyrenda og lesenda, og við erum þeir
einu í samtímanum sem þora því.
Allir hinir þrá Like og Share.
Það er því bannað að taka mark á Spennulosun.
Að lokum:
"Verið stöðugir í bæninni." --Bibban
* Enginn man í dag að "það að kenna" í rauníslenzku er að nauðga. Samanber fangavist Ólafs Kárasonar Ljósvíkings, fyrir að hann kenndi hennar.
* Já, því Ríkið rétt eins og Lögin, eru útdregin (Abstract) hugmynd, og byggjast á sannfæringu þess sem eigi er auðið að sjá og von um lofað en óséð: og krefjast því trúar, og sé það í reglum, trúarbrögð, og engin trúarbrögð hafa rænt meiru og drepið fleiri, en stofnanatrúin.
* Djinn (Jinn) er í Íslam hið sama og Dímonar í Kristni, en Djinn eða Dímonar leika bæði Djöfla og Dísir. Þetta er ekki kennt í "andlegum fræðum" samtímans, sem öll eru byggð á útþynntu meitlarabruggi, frá hugveitum á borð við Tavistock og Eranos. Jafnvel Kristið fólk, í samtímanum, veit ekki hvað andlegheit eða "spirituality" er í Kristnum sið, en þú sérðetta þegar þú kemur þér á grúfu í mölina. Steinvölur kenna stöff, og þessi mál eru rædd, og byggð á meir en mörghundruð ára grunni, en kemst ekki í algrímin og miðlana, af hreinni tilviljun.