19.6.2026 kl. 14:30
- múður slúður síúður -
Við höfum áður rætt, að auðvelt er að vita hvað er í pakkanum, bæði höfum við verið í pakkanum í þrjá áratugi (fengið allt, gefið ekkert), og þar utan var samið um heildarpakkann (85 %) fyrir rúmum áratug. Loks eru fjöldi landa fönguð af pakkanum, og samanburður til hjá þeim öllum, og þriðjungur þeirra vill út.
Elítan lætur þó eins og ekkert af þessu sé rétt, og fjölmiðlar syngja viðlag, og almenningur svæpar snjallsíma eftir ódýrum Teneferðum og krúttlegum Tinderdeitum. Enginn lærði neitt af sprautumeðferðinni, eða kannski heppnaðist* hún svona vel.
Þetta er næztum jafn fyndið og þær fullyrðingar að Ísland geti flutt út rafmagn um sæstreng, sem var aðal bakraddasöngurinn í fimmtán ár, eða þar til skálda þurfti allskyns útskýringar á því eftir 2020, að rafkerfið annar ekki eftirspurn fyrir rafbílana.
Þegar minn var í grunnskóla, var kennd mannkynssaga í staðinn fyrir félagslega lífsleikni og múgsefjun (félagslegan þroska), og við lærðum t.d. um fall allra helztu stórvelda Sögunnar.
Kannski er hætt að kenna þetta efni, eða skilning á því, þessi misserin sem öll vestræn ríki, með "Íslenska Lýgveldið" fremst í flokki, virðast staðráðin í að endurtaka öll mistökin, með áherslum og þráttum, örugg í þeirri fullvissu að niðurstaðan verði allt önnur.
Ljózt er að til stendur að afsanna staðhæfingu Albert Einstein, að geðbilun sé sú sannfæring að geta endurtekið sömu mistök í sífellu, og vænta nýrrar útkomu í hvert sinn.
Bíddu, ofaná Skrefaskattinn og Gistináttagjaldið, hefur nú "Lýgveldismafían" stofnað Innviðafélag til að starfrækja Ríkið! Svo við vitnum í fornan speking á tímum Faraós í forn-egyptalandi, Youcann Otmaketh Isshiteup, sagan rímar!
En ræðandi um ýmislegt, þá hefur komið í ljós að hulin öfl á bakvið mafíuna, vita að rétt er það sem við höfum rætt (bæði í Spennulosun og ítarlega í Arkívinu) - fyrsta stórrán* Íslandssögunnar af fjórum - varðandi stuld Arne Arneus, á jarðabókum landsmanna, í upphafi átjándu aldar. Nýverið kom í ljós að hugsanleg sönnun fyrir þessu liggur í skipsflaki útaf Langanesi; og allt kapp verður lagt á að tryggja að sé skjalið til, komizt það í réttar hendur.
Þú getur hafnað þeirri yrðingu, að við séum dáin og viztuð þúveisthvar en þúveisthvar hafnar þér þó ekki; og bíddu, það styttist í að Megas syngjumða, bara til að hrekkja þig smá.
Vissir þú að Þjóðverjar sprengdu tvær kjarnorkusprengjur í tilraunaskyni, á Eystrasaltinu, haustið og veturinn 1944, og að þær voru útbúnar með Ítölskum kveikjubúnaði, og hvorutveggja leit nákvæmlega eins út og þær þrjár sem fluttar voru með kafbáti til Maine í april 1945, og að í ágúst 1945 voru Japanir tvær vikur frá því að sprengja sína fyrstu, og að veturinn 44/45 sökktu Þjóðverjar hátt í þrjátíu skipum Bandamanna, með flugskeytum, og að Japanir voru sex mánuði frá því að þróa sín eigin þegar þeir voru sigraðir, og skilur þú vægi þessa samanber það sem var að gerast við Persaflóann á síðustu vikum?
Kannski trúirðu því að í Íran sé klerkastjórn og að Zionistar séu Gyðingar?
Veistu kannski hvernig hraði gervihnatta og geimstöðva á sporbaug um jörðina er reiknaður og hvað knýr hvorutveggja áfram? Veistu hvernig Arthur C. Clarke fann þetta út? Þú veist hver veruleikinn er eþaggi, að ef þú skýtur upp í firmamentið fer hraði sporbaugsins eftir hæðinni, og að hraðinn er í þá átt sporbaugsins sem passar við, að þessi himnaför séu ýmist fest við firmamentið eða fljóti með því, þ.e. eftir því hvort fyrirbærið sé í þeim hluta hvolfsins sem snýst með eða snýst ekki með. Um leið og þú fattar þetta, fattarðu hvað knýr himnafarið, og stýrir hraða þess, og þú fattar hversu mikið af vísindunum eru, svo aftur sé vitnað í meistara Youcann Otmaketh Isshiteup; sjónhverfíngar og "útskýringar."
Þú manzt að stranglega bannað er að taka mark á Spennulosun. Það getur kostað höfundinn sjálfsvíg með hakkaskoti ef tekið er markáonum.
Loks smávegis viðbót við færsluna á undan þessari: manztu þegar elítan gerði lítið úr konunni sem hrópaði að röð þungaðra kvenna og varaði þær við að fara í sprautuna? Allar forðuðust þær sígó og brennívín, en voru ákafar í óþekktu sprautuna. En bíddu nú við; ef elítan hafði efni á þeim áróðri - að gera lítið úr aðvörunum Antivistans - hvar eru þá mælingarnar varðandi útkomuna?
* Ljózt má vera, að fullsprautaðir (3+) sjá aðra liti, heyra önnur hljóð, og sjá aðrar verur, og bregðazt við áreiti á annan veg en hálfsprautaðir og ósprautaðir. Við sjáumetta þó ekki, nema Aldingjar, Fjölæringjar og Dulfræðingar fatti, og bendi á. Um leið og þú skilur þennan veruleika, blasir hann við.
* Veiztu hver hin þrjú stórránin eru, og hvernig þau eru sönnuð?