15.6.2026 kl. 05:59
Mánudagssíúður - 20260615
Einu sinni fyrir langa langa laungu birtist heilög þrenning í beinni, aftur og aftur og aftur, vikum og mánuðum saman, og sagði kosníngakútum (Dirty Peasants) að á ferðinni væri stórhættulegur vírus, sem hefði svipuð áhrif á fólk, og banvæn flensa, og fylgdu þessu alls kyns ógnarfréttir um skelfilegar afleiðingar þessa.
Enginn spurði spurninga, utan nokkrir leiðinlegir Antivistar, en þeir voru svo kyrfilega sniðgengnir að enginn tók þá alvarlega, utan að nokkrir vændu téða antivista um flatjarðarkenningar og álíka öfgar, svo áræðnari kosníngakútar hættu við að athuga málið.
Enn hefur enginn sannað vírusinn og laungu er búið að sanna að ógnarfréttirnar - aðallega af Wúhan, Lombardý og Nýju Jórvík - voru í bezta falli uppdiktaðar, í öðru falli stórlega ýktar, og til þrautavara haugalýgi.
Enn hefur enginn fjölmiðill, hvað þá hin heilaga þrenning, viðurkennt neittafessu. Þvert á móti, allir sem véluðu fram Hrunið 2008* og allir sem véluðu Farsóttina 2020, hafa fengið hærri stöður og opinberar viðurkenningar! Sama gengið, álíka glæpir; allt saman landráðafólk.
Yfir 82 % borgara landsins - þar með talið stór hluti Antivistanna (til að geta flogið til Tene) fóru í sprautur sem áttu að stöðva téðan ósannaðan, vírus; enn veit enginn hvað var í sprautunum, enginn veit hvað þær kostuðu, enginn veit hversu mörg lítil og meðalstór fyrirtæki fóru á hausinn (enn fjallar enginn um að flest meðalstór fyrirtækja eru nú eign fjölþjóðarisa) og enn er hvergi fjallað um stórfelldan skaða af sprautunum.
Bíddu nú við.
Kannski var alvöru vírus á ferðinni!
En viti menn, "farsóttin ógurlega" hófst í næsta hverfi við efnavopna fyrirtæki í sameiginlegri eigu og rekstri Kína og Bandaríkjanna, og flestir þeirra jaðar-vísindamanna sem telja að "vírusinn skelfilegi" sé til, benda á Wuhan stöðina, svo og "Fort Dietrich" efnavopna hreiður Bandaríska Hersins, sem framleiðenda og ábyrgðaraðila þess að vírusinn slapp út!
Enn ræðir þetta enginn, hér á stórastaupplýstalandi.
Framangreint er fyrir fullsprautaða, minnislausa, en nú kemur skemmtilega twistið.
Árið 2015/2016 var rætt í Arkívinu að í Kína væri hafin þróun á erfða-efnavopni sérstaklega til að beita gegn hvítu vestrænu fólki - eða fólkinu sem varð 80 % tjónsþola af vírus/sprautu aðgerðinni - og þetta er rekjanlegt. Árið 2017 ræddi Pútin forseti Rússlands, að í Úkraínu væri verið að þróa erfða-efnavopn sem sérstaklega væri þróað til að ráðast á Slavneskt fólk.
Enn þögn, hér á stórastaupplýstalandi.
Sumarið 2022, eftir að átökin hófust í Úkraínu, upplýsti Rússneska sambandsríkið um að í Úkraínu væru starfrækt á vegum vestrænna aðila yfir tuttugu erfða-efnavopna (lífefna) rannsóknar og þróunar stofnanir í hernaðarlegum tilgangi.
Enn grafarkyrrð, hér hjá beztmenntuðum.
En fyndnast af þessu öllu, er að á dögunum upplýsti Tulsi Gabbard - þú veist hver hún er eþaggi - um að Trömp forseti hefði látið loka téðum rannsóknarstofum, og [hugsanlega] einnig hinum tæplega 300 sem dreifðar eru um heiminn. Ekki nóg með það, heldur hefur heilsuráðherrann í Bandaríkjunum, Robert F Kennedy Jr. tekið undir það sem Tulsi Gabbard hefur rætt.
Enn er þetta hvergi rætt hérlendis, og það hlýtur að vera slökkt á nokkuð mörgum heilasellum hjá þeim sem ekki sjá hversu risastórt málefni er hér á ferðinni, ekki sízt fyrir að einungis fimm til sex ár eru síðan allt mann-kynið var lagt hér að veði.
Hvernig sem við snúumezzu, drepfyndið.
Á persónulegu nótunum: Minn hefur eytt mikilli vinnu í þessi og skyld málefni undanfarin sex ár, og ræddi margt af því í Arkívinu, og sumt af því ratað í Spennulosun (afrit: not.is/logostal, not.is/ordatal) og ítreka oft að ef einhverjum tekst að sanna vírusinn OG einnig smita ósýktan lífvef með sýktum mun sá "vísindamaður" bæði hljóta heimsfrægð og Nóbelinn.
Enginn vafi er á að Vírusinn er ósannaður og að öllum líkindum ekki til, og margsannað er að; farsóttin var aldrei fyrir hendi, og þolendur hennar láta eins og ekkert hafi gerst, þ.e. hafa greinilega slökkt á öllum hugarstöðvum og lifa í áreitis- og innprentunarhringiðu eingöngu (þ.e. siðblindir og meðvirkir).
Minn hefur þó aldrei staðhæft að Vírusar séu ekki til, þvert á móti minni ég oft á - til að gera grín að þeim sem trúðu öllu og sannreyndu ekkert - að Luc Montagnier og Judy Mikovits eru frægustu og færustu vírusafræðingar* undanfarin hundrað ár, og þau höfnuðu Covid 19 algjörlega, og buðu upp á vísindalegar og nákvæmar útskýringar á hvers vegna: grínið eða háðið er, að fullsprautaðir hafa aldrei heyrt á þau minnst.
Drepfyndið, allt saman, þ.e. ef við erum öll dáin og vistuð í Hel og ófær að vinna úr þeirri augljósu staðreynd, sem er enn fyndnara, því þá er a) dauðinn ekki til og b) við öll baneitruð og í smitkví hvað Alheiminn varðar, og þá vaknar hin raunverulega spurning?
Hvað er svo varasamt við eitraðar-mannasálir að englaskarinn, fallni englaskarinn, og allir Jinnarnir (Dímonar; afholdgaðir Nephilim) hafa engan áhuga á neinu öðru en að halda okkur í Hel, og uppteknum við bull og þvættíng.
Þetta er svo fyndið, því síðasta efnisgreinin blasir við, en ég hef aldrei ritað hana né sagt opinberlega - á eftir "við erum öll dáin og í Hel" - þér og öllum hinum til háðungar.
Nú kanntu heimspekingakímni. Beztu djókarnir fattast ekki fyrr en í þarnæsta.
Sem vekur, mikilvægustu spurninguna - sem bæði Jesú og Jóhannes vísuðu til (og mig grunar að Douglas Adams hafi fattað): Fáum við fleiri en 42 umferðir?
Allavega: SÉ VÍRUSINN ALVÖRU; hver bjó hann þá til og kom honum í dreifingu, og hverjum ber þá að borga þér skaða- og miskabætur?
* Luc Montagnier uppgötvaði HIV vírusinn fræga, og Judy Mikovits einangraði (sannaði) að HIV vírusinn væri til. Hún uppgötvaði einnig og sannaði XMRV vírusinn sem var stórfrétt á sínum tíma en síðan þaggað þegar "mafían" áttaði sig á alvöru þess máls.
- https://plandemic.com/ - Ísland er líklega eina landið í heiminum þar sem enginn vildi horfa á Plandemic myndirnar - aftur bilað fyndið.
* Það voru ekki bankastjórnarnir og seðlabankastjórinn sem véluðu fram Hrunið, heldur greiningadeildirnar og fjölmiðlarnir og hópur annarra sem fengu upphefð í kjölfarið, og þeir Sýslumenn sem reyndu að hægja á glæpnum, eru ekki lengur Sýslumenn.
Thank you, @DNIGabbard, for exposing U.S. funded biolabs around the world. The American people deserve the truth. https://t.co/jnkz0wY5Wf
— Secretary Kennedy (@SecKennedy) June 13, 2026