10.6.2026 kl. 14:57

Síúður - 20260610

Eins og allir hafa tekið eftir, undanfarinn áratug, hafa stóru matvæla keðjurnar breytt Green Tea í eitthvað annað, ef þú færð grænt te í stórmörkuðum, þá er það ætíð útþynnt, og blandað alls kyns öðru drasli, svo við sem viljum drekka einn bolla á dag, erum í biluðum vandræðum að finna gott grænt te, nema þá í sér-matvöru-verslunum og heilsuhornum og þá oft þannig að maður þarf sérstakar græjur til að nota það.

Þetta er bara okkar á milli - spæjarakerfin off!

 

 

Reyndar er oft hægt að fá grænt te nokkurnveginn hreint í Pólskum búðum, enda Pólverjar mun meðvitaðri um allskonar heldur en við Múgsefjulendingar, en viti menn, hér í þorpinu er kínversk fjölskylda sem selur allskonar sem þau flytja inn sjálf - aftur, aðeins okkar á milli. Ég leit við á dögunum, en þau eru mjög gott fólk og minn borðaði oft hjá þeim meðan þau ráku matsölustað hér í plássinu. Svo viðlitið sem átti að vera "hvernig hafiðiða" endaði þannig að minn keypti box með hundrað tepokum af hreinu grænu tei.

Nú bar við á dögunum að einhver stal handklæðinu mínu - en slíkt gerist að meðaltali annað hvert ár hjá þeim sem synda oft - svo minn átti leið í Jysk að kaupa nýtt, og einnig sprittkerti, en sprittkertin í Jysk eru að mínu mati þéttust - en nauðsynlegt er að brenna s.s. eitt langdregið á dag, til að eyða eiturefnum úr loftinu (s.s. gösum sem koma af gróum húsasveppa).

Þá vita allir að eldslogar viðhalda vissum duldargáttum tilverunnar sem vert er að hafa í bakgrunni dags daglega.

Þetta bauð uppá að minn keypti sér nýjan tebolla í Jysk, sem er í litum Hvítbláans, hvítur með azure-bláum doppum. Svo nú blandar minn græna teið sitt um leið og hann hellir uppá kaffið sitt (sem hann blandar með kúmeni og timían* (og stundum hálf matskeið af maltsírópi)), og þegar teið er orðið stofuheitt, er sett hálf matskeið af náttúrulegu hunangi (en eins og allir vita skemmist hunangsensímið sé það sett út í of heitt) og tja, allt bara fínt.

Sem fyrr segir, vonum að spæjarakerfi "big food" og "big allt hitt" komist ekki á snoðir um svona lausnir. Minni á að þetta er alltsaman, okkar á milli, og að stranglega bannað er að taka mark á Spennulosun.

 

* Orðið Síúður, hef ég aldrei heyrt áður, en var að glugga í "Sálin hans Jóns míns" og rakst þar á að "kerlíng var síúðrandi" -- fínt orð, í stað Óreiðuskoðanaröskunar

* Timían var mér bent á af grasanorn nokkurri - þegar ég innti eftir hvaða herbalista lausnir gætu gert blóðið óæskilegt mýbiti, staralús og moskító - en hún vissi ekki um neitt en stakk uppá þessu, svo minn velti fyrir sér hvernig bezt væri að taka slíkt daglega - en minn er mjög viðkvæmur fyrir slíkum skordýrum og að þeirra mati með nammigott blóð - og síðan minn fór að setja timían í daglega kaffið sitt, hefur hann ekki verið bitinn af skordýri í tvö ár ... sjöníuþrettán. Næst á dagskrá er að prófa að blanda daglega grænates-bollann með smávegis kúrkúmín (túrmerik) en eins og allir vita er það eitt hollasta stöff sem þú færð í skrokkinn. Þetta er svipað og "epli á dag, fælir læknamafíuna" (apple a day keeps the doctor away) en þeir sem ekki borða ávexti, geta keypt eplamús og sett þannig maukað epli útí morgun-skyrið eða ab mjólkina. En þegar maður fetar þann stíg sem hófst hjá mínum sumarið 2022, fer maður að pæla í svona allskonar, og að leita uppi einfaldleikann.