9.6.2026 kl. 12:09
Þegar engin málefnin eru
Þegar Siðmenning fellur inn í sjálfa sig, er það innihald (Substance) hennar sem verður merkingarlaust, og kerfisbáknið* sem hún smíðar, fer að tútna út, stofnunum fjölgar eins og krabbameins frumur sem breiðast út og loks kæfa "sjúklínginn" sem í þessu tilfelli er "lýðurinn" sem "þjóðin" stjórnar.
Svetlana "Zombierella" Nagaeva er kúl á bassanum
... og veit ekki af því
Eitt af því sem gerist í slíkri stöðu, er einmitt að tæplega 50 % fólksins* hættir að lesa eða heyra með skilningi, og hinn helmingurinn hagar sér eins og ekkert skipti lengur máli, sá hópur sem tilheyrir lýðnum hættir að skeyta um mikilvæg mál og sá hópur sem tilheyrir þjóðinni sperrist upp eins og fjaðralaus páfugl, að auka við vægi sitt og vald, hverjum þeim til skaða sem fyrir verður.
ESB umræðan er eitt gott dæmi um þetta ástand. Enginn meðal almennings, sem við hittum í sundi, gönguklúbbum, járnvöruverslunum - eða víðar - hefur neinn áhuga á að ræða um ESB. Jafnvel þeir sem hafa bergmálað eins og páfagaukar allar götur síðan 2007 - við hefðum það svo miklu betra í ESB - eru þagnaðir, og hrista hausinn sé minnst á málefnið. Enginn hefur áhuga, hvorki á umræðunni, né umsókninni.
Utan eitt; enginn vill fara þangað inn, og allir sjá að Elítan er einhuga um að fara þangað inn, hvernig sem því verður áorkað. Eins og plasttappar, innkaupapokar og verðmerkingar; þegar engin málefni eru til, sem máli skipta, er smíðuð eintóm vitleysa.
... og rétt einsog við hrun Grískrar og síðar Rómverskrar siðmenningar - eða í Gíbeu - forðum daga; er þér betra að vera hinsegin en beinlínis ...
Reyndar er einn stjórnmálaflokkur á handbremsunni, en allir hinir flokkarnir (ásamt öllum fjölmiðlum) eru sameinaðir um að sverta (Demonize) og jaðarsetja (Marginalize) þann flokk - og foringja hans - eins og hægt er, hvar sem því er viðkomið.
Svo áberandi er þessi einhugur, að þeir hafa steingleymt að berjast innbyrðis, rétt eins og 2020 til 2023, þegar allir voru samhuga um að marséra morðóðan gæsagang, eins og allir væru uppaldir í Hitlersæskunni - en væru þó ekki Nazistar því þeir væru ekki í einkennisbúningi.
Staðreyndin er sú, að Íslenska Lýðveldið - sem oft er uppnefnt Ísland - hefur notið alls þess sem ESB hefur upp á að bjóða síðan 1993 eða í rúmlega 30 ár, án þess að fórna nokkru til. Fjöldi landa sem eru í ESB, sprikla í trollinu undanfarinn áratug, og þær umræður eru þaggaðar hérlendis, og í mörgum þessara ríkja eru til nákvæmar, einfaldar og aðgengilegar upplýsingar, um þann heljarþrymil sem ESB inngangan olli þeim, en þetta er ekki rætt.
Niðurstaðan er - samanber fyrsta erindi - innfallin siðmenning, hefur engar umræður, engar samræður, enga upplýsingu; aðeins áróður, innprentun, og ofríki.
Hægt er að fara dýpra í þetta spennandi málefni - því á því eru vissulega spennandi fletir - en minn var að hella uppá, er að sötra fyrsta kaffibolla dagsins, og ætlar að hlusta á upptöku í "English Bookcast" áður en hann fer í sjúkraþjálfun.
Fattarðu vald þjóðar yfir lýð, eða þarf að útskýra fyrir þessum 50 % sem var ekki boðið í Spennulosun en kom samt?
Skiptir sosum engu, þú annað hvort flýrð eða fleygir þér í mölina.
* Árið 2017 voru stofnanir Ríkisins 140, árið 2023 voru þær yfir 190, og þegar minn spurði fólk hér og þar - geturðu nefnt fimm stofnanir með nafni - gat enginn svarað. Á sama tíma hrundi vegakerfið, og sjúklíngakerfið er þannig í dag að þú mátt þakka fyrir að fá rúm í stofu frekar en frammá gangi, eða komast til læknis innan sex vikna frá því þú hringir í tímapantanir. En ef marka má Fjölmiðla, er vegakerfið betra en hraðbrautir Hitlers og sjúkrakerfið hannað af Jesú sjálfum.
* Bæði Lýðurinn og Þjóðin - fólkið - eru undirorpin þeim álagafjötrum, að hvorki lesa né heyra sér til skilnings.
🤣🤣🤣🤣 pic.twitter.com/IPWGYnmQLT
— Juan (@XaLaRa_Se_Lew) June 3, 2026