18.7.2026 kl. 05:45
- hýena gammur kið -
Siðmenning, merkir að "raunsæjar hugmyndir" eru notaðar til að reisa múr á milli þín og rándýra merkurinnar. Innfallin siðmenning merkir að illgjarnt (Wicked) fólk hefur yfirtekið og raungusnúið téðum hugmyndum, svo þú ert öruggari meðal rándýra merkurinnar, en innan borgarinnar.
Til að hafa raunsæjar hugmyndir, þarf menningu, en menning er samsett úr öllum tjáðum hugmyndum manna. Sé ritskoðun á hugmyndum manna, deyr menningin, og samfélag manna, breytist í hjörð [mann]apa.
Siður, er fágun þessara tveggja þátta - slípuð saman úr agaðri frumspeki (Disciplined Metaphysics). Ef enginn veit þessi þrjú atriði - sem eru skyld hugmyndum Hegels* um "Abstract, Concrete, Absolute" - er tilgangslaust að útskýra neitt af þessu, enda veldur innfallinn SIÐur því að fólk telur sig vita allt, en veit ekkert, og skilur minna.
Þegar Spámaður Guðs, Elía Tísbíti frá Thisbe í Gilead, vitnaði fyrir tveim meztu illmennum Sögunnar, Ahab forseta og Jezebel ríkissaksóknara, sá hann fyrir að "villtir hundar" myndu rífa hana í spað, sem rættist í tvennum lagskiptingum, að hýenur embætta ríkisins, hrintu henni framaf, og hýenur merkurinnar ruddust inn á torg borgarinnar (siðmenning er einnig tengd við borgarmenningu)* og rifu hana á hol.
Hér vísar Elíja - sem talinn er einn af fimm öflugustu Spámönnum Eingyðistrúarinnar - til Grískrar mýtu sem vel var þekkt á því svæði sem hann bjó, eða villihundinn Cerberus, þríhöfða þursa-hýenu, sem aftur táknar hornin þrjú sem Daníel og Jóhannes spáðu um, Félags-, Efnis-, og Valdhyggju, sem samtvinnaðar mæla formælingar, og rústa öllu er á vegi þeirra verður. Einn magnaðasti spádómur allra tíma, sem rætist aftur og aftur, hvarvetna sem hortugheit (Hubris) ríkja, þ.e. þegar valdsherrar, telja sig vættum framar, eða storka vættum upp í opið geðið, sjálfum sér og almenningi til smánar. Þá er einnig áhugavert, að Cerberus heitið er nátengd "Cerebral" eða þess að "hugsa of mikið" sem aftur vísar til munarins á Rökrétt ggn. Raunsætt (Logic vs. Reason), en hið fyrra er djöfullega skammsýnt en hið síðara háð Náð.
Hér er einnig merkilegt, að Jóhannes lýsti vel þeim sjö heimssýnum er menn túlka í tuttuguogeina heimsmynd, sem síðan tröllríður þeim, en stillti hornunum þrem við hlið þeirra, sem er afar djúp speki og við höfum ekki pláss fyrir hér (en höfum rætt ítarlega í Arkívinu).
Smá hugleiðing frá Charles Upton - en nýlega tæptum við á
hinum Guðdómlega Skopleik Dante-s, Inferno Purgatory Paradiso:
https://www.youtube.com/watch?v=w6GylWvAX90
Hér í Hel, er soldið fyndið, þegar maður fattar djókið.
Á Íslandi komu fimm þjóðarbrot aðfluttra landnema saman, árið 930 AD og ákváðu að gera tvennt, annars vegar smíða nýja þjóð og hins vegar hanna SIÐ, og þar með urðu fyrsta SIÐmenning Sögunnar, sem ekki hafði neina Borg sem bakland né ritmál, hún er einnig eina þjóð Sögunnar sem samið hefur frið eftir tvenn borgarastríð án þess að annar aðilinn sigraði hinn, og fram til 1944, eina þjóð veraldar sem ekki hefur háð stríð gegn annarri þjóð, sér til ávinnings (Grandizement) og braust undan erlendu valdi með orðum án ofbeldis - auk þess að vera eina þjóð Sögunnar sem hefur útskipt frumspeki sinni með umræðu-þáttöku allra manna sem að henni búa. Þessi þjóð - sem átti að verða ljósið úr norðri og var í tólf aldir vernduð af vættum - er nú dáin [af sjálfsdáðum], dauðahryglan tók fáein ár og lauk fyrir áratug. Það mun koma ný þjóð hingað, hugsanlega, eða sú genabreytta verður notuð í afleggjara, og hún mun nota aðra tungu, því tunga Kolskeggs Ýrberasonar verður ekki [endur]lífguð.
* Eitt af því fyndna við Hegel, er að Platónskur samtíminn (sem skilur ekki háð stimpilsins), klínir hugmyndum sósíalistans Johann Fichte upp á Hegel, þ.e. "Thesis, Antithesis, Synthesis" og [upp]nefnir "The Hegelian Dialect."