17.7.2026 kl. 18:47

Loftskattar og Skrefaskattar heilags Kalla Marx

Loftskattar hinnar guðdómlegu félagslegu elítu eru óborganlega fyndnir, í ljósi þess að þeir eru grimmari, frekari og meir auðmýkjandi en hinar myrku miðaldir sem þau "frelsuðu" okkur frá: OG að enginn bendir á það. Hey, það eru jú "vísindin" þessi sömu og genabreyttu þér vegna "flensu."

 

 

Íslenzka "Lýgveldið" breytti nýverið fánalögum sínum - fyrstu lögum sem Lýðveldið setti sér 1944 - og allir vita þó við getum ekki útskýrt, þá skipta fánar og flögg máli. Í sumar er Lýðveldisfánanum (sem flestir uppnefna Íslenska fánann (án zetu), af vanþekkingu) flaggað allsstaðar og allan sólarhringinn, og það er dálítið fyndið, þó fæstir skilji djókið.

Jú, hví er flaggað, hverju og hvers vegna? Það skiptir jú engu máli lengur, flagg er bara flagg, og að setja því eikkurar reglur, eða gera athugasemd við, er bara þvermóðskuleg þjóðernishyggja og öfgar. Við erum jú nútímafólk sem stjórnast af snjallsímum, gervigreind og vísindum.

Ungt fólk segir mér að það fylgist ekki lengur með fréttum, þær séu ýmist óskiljanlegar, flóknar og leiðinlegar, eða hreint út sagt ógeðslegar.

Þessu fólki finnst í dag að stjórnkerfi þjóðfélagsins sé sér fjarlægt eins og kirkjan til forna, og að sér komi ekki við hvernig nýi félagslegi aðallinn - eða elítan - hagar sér, eða hvað hún útskýrir með flaumi útskýringa og orðhengilshætti sem komi sér - almenna fólkinu - ekkert við.

Unga fólkið á nóg með að afla sér tekna fyrir heimilinu, Teneferðum, og útgjaldafjallinu, en gjaldheimta "góða fólksins" og skattar, heimta tvo þriðju allra tekna unga fólksins og jafn sligandi og það sé, eru hvergi neinar umræður eða grasrótar hreyfingar (nógu öfgalausar eða lausnamiðaðar) til að snúa sér að.

[

Síðan 2021 eiga fjölþjóðasjóðir öll meðalstór fyrirtæki landsins, þriðjungur eigna fólks var aftur sviptur - á bakvið platsóttina - og á sama tíma breyttust lánareglurnar, svo ungt fólk getur ekki keypt fyrstu eign, og viti menn, eignamarkaðurinn er frosinn mánuðum saman og án raunsærra skýringa, Vestrænn iðnaður (og þar með velsæld) er hruninn og Íslenska elítan á engin önnur ráð, en Skrefaskatta, Náttagjöld, og STRÍÐ.

... og Úkraínskir flóttamenn fá ekki skjól, nema fara fyrst á vígvöllinn!

]

Helmingur unga fólksins hefur enga getu til að lesa sér til skilnings og gagns, hefur enga þekkingu á landakortinu, enga raunhæfa þekkingu á sögu eigin þjóðar né Mannsins, og gerir engan greinarmun á Þjóðfélaginu og Samfélaginu (og að annað er hattur fyrir mígrút hins); og þeim er slétt sama, enda sér "kerfið" eða "báknið" um allt, jafnvel þeirra eigin hugmyndir um sjálf[t] sig.

Vonleysi og tilgangsleysi hefur gripið alla, og það er þannig allsstaðar í hinum upplýsta, vísindalega, tæknilega heimi, með flóknar útskýringar við öllu, og svör við því að við urðum til í slembikenndum Mikla Hvelli úr engu og vitið þróaðist af tilviljun frá öpum sem viti menn; hafa fleiri litninga en við!

Já, ég var hér að gefa í skyn að sumar apategundir hafi orðið til á átjándu og nítjándu öldinni, eftir tilraunir aðalsins, á fólki, að hægt sé að breyta fólki í apa, og að það séu alvöru vísindi.

En hey, slökum á , þetta er jú: Spennulosun!

Í dag geturðu ekki tekið þátt í fyrrgreindu þjóðfélagi, án plastkorta sem vísa á tölur á bankareikningi. En í dag má loka bankareikningi þínum fyrir Óreiðuskoðanir, og ESB hefur nú sett reglur um að hlera megi öll persónuleg samskipti þín, og nýverið sýndi "Lýgveldið" og sannaði, að ef þú segir eitthvað í gríni við vin eða venslaðan, má fleygja þér í miðaldadýflissu - rétt eins og þegar Bretakóngur eftir Siðaskiptin drap borgara sína fyrir ranga túlkun á Altarisgöngunni (Transsubstantiation deilan), eða þá þegar aðrir Siðabótar klerkar s.s. Lúter og Kalvin drápu fólk fyrir að gera hið sama og þeir sjálfir, en sumir fóru víst of langt að þeirra mati og höfnuðu Míþrasarhyggju Kristins siðar (Þrenningardeilan).

En hey; ef Lýðveldið er nú þegar að greiða erlendum stofnunum skatta, þá er sjálfsvaldið löngu framselt, og ef þú trúir að vöruverð lækki við að fara alla leið, þá fattarðu ekki hvað það er að Ríkisstjórnin verður sett undir aðra Ríkisstjórn sem aftur hefur þriðju; og að þær munu allar skatta þig!

Viti menn, lygarnar eru ekki þær sömu í dag og voru á Miðöldum, en grimmdin og ofsinn í "elítunni sem elskar okkur" hefur ekkert breyzt og hver veit hvort ég get notað Facebook eða YouTube núna á eftir, fyrir einmitt þessa færslu.

Ég ræddi við mann fyrr í sumar, hann er öldungur hér í héraðinu, brosmildur og hlýlegur maður sem hugsar vel um sjálfan sig og kemur vel fram við aðra. Hann á afkomendur í héraðinu og hann var þekktur í áratugi, bæði fyrir þáttöku í útgerð og einnig fyrirtækis sem hann rak í langan tíma í bæjarfélaginu. 

 

 

Ég innti hann eftir hvort hann hafi tekið eftir breytingunni á Fánalögunum. Hann svaraði þannig, það er enginn áreiðanleiki lengur, verkhópar hér í bænum breyttu ýmsu í Bæjarfélaginu þetta árið, því reglur og verklag hafði verið endursamið, en þeir gerðu breytingar á því sama fyrir tveim árum og af sömu ástæðu, og aftur fimm árum fyrr, af sömu ástæðu, og ungir menn læra ekki verkiðn í dag, því það er svo flókið að reka smávegis verktakaþjónustu eða starfa við iðn - vegna reglugerða - að það tekur því ekki að læra neitt, og þeir einu sem fara í háskólanám læra einhverjar félagslegar flækjur sem eyðileggja frekar en að byggja upp. {stytt og stílfært}

Sjálfur er ég sammála þessu hjá honum, og við erum alls ekki sammála um mjög margt, honum finnst ég of neikvæður á stundum, og skilur ekki höfnun mína á "yfirborðsjákvæðni" og að ég geri engan greinarmun á Sósíalisma, Kommúnisma, Fasisma og Marxisma, og hann er sáttur við Skrefaskattana sem þungunarrofsmafían nefnir Kílómetragjald. En við sjáum að menningin er dáin, mín orð, hann gefur henni enn smávegis séns. Enda jákvæður maður.

Ég hef þó tekið eftir tvennu, þetta árið.

Ungar konur, sem eru meir og minna eina fólkið sem enn velur lengra skólanám eru unnvörpum að missa áhugann á Bákn-og-Kerfis starfsleyfi háskólanna, ég veit ekki hvað veldur þó mig gruni ástæðuna, vegna hins; ungar konur í Evrópu og Ameríku eru farnar að smíða rásir - sumar með gervigreindar tækni - til að reka nýjan and-femíniskan áróður; þær eru byrjaðar að virkja meðfædda (kerfisbælda) náttúru sína, til að efla unga menn til dáða og drífandi karlmennsku, þær vilja breyta geldum eineistingum Metrósex sem aldir eru upp af kerfinu, úr dáðlausum vesalíngum, í menn sem geta þeim börn, veita fjölskyldum sínum forystu, og læra nothæfa iðn sem byggir upp samfélagið, og taka þátt í öðrum samfélögum, og sniðganga Þjóðfélag "afætu-hyskisins" sem lifir á okkur hinum, og stjórnar og dæmir um allt sem við segjum og hugsum.

Það er þannig séð að rætast, sem við höfum mörg óskað, og var oft rætt í Arkívinu, að byltingin verður ósýnileg, virðingarverð, og vitleg, með vopnum sem elítan á engin svör við. Friðsöm og siðsöm, í anda Tolstoy og Gandhi.

Ungu stúlkurnar hafa fengið nóg, og drengirnir vita því hvað sér er fyrir beztu.

Eins og það á að vera og hefur alltaf verið; við karlarnir ráðum engu og viljum engu ráða, og þess vegna erum við sendir í vinnuna til að smíða fyrirtæki, og allt hitt, svo við séum ekki fyrir á meðan "alvöru" fer fram. Minn hefur stundum áminnt, þegar heilaþvottur femínista dúkkar upp í samræðum, að konur kenndu þér að tala, og þar með bæði að hugsa og tjá heimsmynd þína og sjálfsmynd, og þar með ráða hug þínum, og ef þú hefur feiminn og stamandi varla þorað að hringja í hana og bjóðenni út, þá veiztu þetta. Og hér er sönnunin, þorir þú að segja konu þinni að þú viljir eiga tvær?

Það er þannig með alla raungusegðar-efnishyggju, Marxista, Femínista og Zionista - sem nærast á að klína sjálfshatri sínu á aðra - ein setning getur skrúbbað burt áratugum af innrætingu og heilaþvætti, á svipstundu (Instantaneously)

Sem minnir á annað, sem aðrar samræður við öldunginn fengu mig til að rifja upp:

 

Mestu framfarir Íslandssögunnar, fóru fram árin 1919 til 1941, við sjáum það ekki í dag og áreitið allsstaðar felur það fyrir okkur, en árangur þessara 22ja ára, skópu allt hitt sem við búum að síðan - voru hlutfallslega margfaldar - og lögðu undirstöðurnar, þéttu plönin, og vísuðu leiðina, og það fólk hafði enga menntun, það gekk til prestsins, lærði lestur, skrift og samlagningu, konurnar og mennirnir sem þá voru, bjuggu okkur til, og það vel, og þau lyftu grettistaki; þau voru frjálsir Íslendingar sem réðu sér sjálf og vissu hvað þau stóðu fyrir, þá var Lýðveldið ekki til, þá hét Ríkið, Konungsríkið Ísland, og viti menn, 75 % þessa fólks vildi halda konungshefðinni við Dani, rétt eins og ríkir frændur okkar á Grænlandi og í Færeyjum náðu að halda í, en við vorum tæld frá.

Hér er falinn rekjanlegur fjársjóður, sem enginn mun útskýra fyrir þér.

Afsakið langa Spennulosun.

Mér aðeins líður betur.

 

Manstu þegar Grindavík lagðist í eyði og orðhengilsháttur var notaður til að fyrra ríkið ábyrgð? Jú Ríkið gerði eikkað, en of lítið og of seint, Grindavíkingar munu segja þér að þeir voru settir út á Darwin og Gaddinn, og stór hluti þeirra á við mikla erfiðleika að etja, en það er allt þaggað. Berir þú það sama við genaminni okkar dánumenningar - ekki dáinnar - muntu bera það saman við þegar byggðin í Heimaey lagðist undir hraun og öll þjóðin og hálft þjóðfélagið lögðust á eitt; og málinu var reddað, og [að mestu] vel. 

Þú myndir þá skilja hvað það er þegar "þjóðfélagið" lýsir yfir neyðarástandi eins og það gerði snemma árs 2020: því þegar Ríkið lýsir yfir neyðarástandi virkjast "force majeure" og ríkið þarf ekki á meðan neyðarástand varir, að greiða erlendum sjóðum nein gjöld, og viti menn, þú gætir fattað, að erlendu svikagjöldin sem þú greiðir í gegnum Ríkið, eru umtalsvert hærri og umfangsmeiri en hefði kostað að leysa Grindavíkurtjónið, með sóma.

Manstu hvaða ár Grindavík lagðist í eyði?

Manstu efir leirflóðinu á Seyðisfirði?

--Chatterbox