9.7.2026 kl. 15:26

- ga rú gly -

Halldór Laxness reit eitt sinn, betri er ríkur þræll en fátækur frelsingi, eða var það öfugt? Allavega hefur minn mest heyrt menn segja - þegar ESB málið ber á góma - "hvort græðum við meira inni eða úti."

 

Ferill Julie Felix var áhugaverður, en hún flakkaði um heiminn í mörg ár - og framfleytti sér með gítarnum - í leit að sjálfri sér, og tón, laungu áður en hennar kynslóð fékk ferðaleyfi.

 

Hvað með að kíkja í hinn pakkann? Við höfum nú þegar verið í ESB pakkanum í 37 ár. Hvað græðum við á að ganga í USA? Til að skilja fátækt dáinnar menningar, þarf að þefa nályktina. Þannig séð myndi það hraða endurfæddri menningu hérlendis, að senda líkið á útfararstofuna í Bruzzel.

Manstu hvað allir urðu hneykslaðir þegar Grænlandi var boðinn USA pakkinn, og enginn hneykslaðist í vetur þegar ESB eyrnamerkti nokkrar milljónir til að tryggja yfirtöku á Íslensum "umræðum?"

Einu sinni fyrir lánga laungu var maður að nafni Jósúa Maríuson sem ræddi mikið við vini sína, skömmu síðar var til maður að nafni Saúl frá Tarsus, sem skrifaði vinum sínum mörg bréf.

Þrem öldum síðar var til maður að nafni Konstantín sonur Helenu og Konstantíusar, sem tók allt sem hinir höfðu sagt og skrifað, og breytti í Antikrist: Þú kallar Antikrist, Kristinn sið.

Til að skilja þá umræðu sem "elíta" heimsins - eða handhafar "dýrða" Satans (Matt. 4:8) - sviðsetur, þarf maður fyrst að skilja samsæriskenningarnar, og síðan finna þriðju hliðina. Ef þú kannt þetta ekki, náði menntakerfið öllum markmiðum sínum.

Ha, er Íslenzk menning ekki dáin?

Eigum við að ræða þegar allir mættu í genabreytingu hjá Billa litla Gates? Eða hitt, að þú græðir núna mest á því að vera hinseginn, en alls ekki einneiginn. Ef þú málar Íslenska fánann yfir Hommafánann, sérstaklega við Kristna kirkju; þá ertu sekur um hatursglæp og öfgar.

Talandi um.

Við vorum örfáir besservisserar í pottunum í morgun, að ræða allt og ekkert, og heyrðist vel í sumum. Einhverjum þeirra verður á orði að rofarnir sem stýra nuddpottinum eru stundum erfiðir. Ég sagði þá við hann "allir karlar hafa upplifað að konan kennir þeim á snípinn, ef þú yfirfærir þá þekkingu á rofana, hlýða þeir." Allir karlarnir hættu að ræða pólitík og vildu heyra setninguna aftur. Sumir þeirra sögðu að sín hefði aldrei kennt á snípinn, svo líklega náði þetta svipuðum árangri og kíkjum í hinsegin pakkann. Þetta var samt skemmtilegt móment, og lærdómsríkt fyrir þá sem aldrei komast að.