4.7.2026 kl. 17:35

- kjól sjór mjór -

Spörfuglar eru snjallir, þeir vita að menn eru þursar en ekki menn, og að ef þursar ná smáfuglum, éta þeir þá upp til agna, með fiðri og gogg. Þeir vita að í kofanum á vindahæð, er vitlaus þurs sem reynir að tæla til sín spörfugla með allskyns bellibrögðum s.s. rúsínum og korni.

 

 

Þeir sjá í gegnum þennan geggjaða tvífætta ófleyga þurs og hafa komist að því að ef þeir skrækja með vissum tón, sannfærist þursinn um að nú geti hann gripið sinnulausa þresti, stara, og smáfinkur, og hann drífur sig í að gefa þeim tæliæti. Þeir sjá við slíku og eru snöggir upp í vindinn og goluna, ef bærast gluggatjöldin eða heyrist í hurðarhúninum.

Kjáni er þursinn, hugsa spörfuglarnir glaðlega, með magann fullan af rúsínum og orkumiklir í flugi út á heiðina, að leita sér að flugum og möðkum hér og þar, eftir veðri. Heima situr þursinn, maðurinn, og horfir á glaða fuglana, í einfeldni sinni.

Á sama tíma hafa fíflarnir flestir breyzt i biðukollur og fræ þeirra dansað í vindi, golu og blæ, sumarsins, sóleyjarnar brosa sínu blíðasta í hvert sinn sem sólarglætan vermir þær, og hundasúrurnar hafa nú loks spírað sínum rauðhettu stilkum, sumir segja seint, en hver veit, það gljáir á frjóin.

Allt þetta verður enn býzt ég við, löngu eftir að Lýgveldið verður gufað upp og ESB horfið inn í viðamikla Söguna. Viti menn, allir þeir sem Xi ýtti til hliðar árin 2019 til 2022, eru komnir aftur upp í efstu þrepin, og það gæti haft áhrif á Vestræna leppa þeirra. Hver veit.

Ef maður skoðar þær hugmyndir sem voru ríkjandi um flest alla Evrópu árin 350 til 650, sér maður allt vaðandi af Nýplatónisma, en eftir að Vestur-Rómaveldi innféll og sundraðist milli 400 og 500 hófst endurnýjun á SIÐ kröfunni, en ekki náðist niðurstaða (þó skóla-Sagan segi einfaldari sögu). Það var ekki fyrr en með Carólíngjum og Meravingjum sem menn fóru í alvöru að snúa sér að Vizku Konstantínusar mikla þegar Kirkjuþingin hans (325 til 375) hófu að útrýma Nazarenunum og endurnefna Míþrasarþrenninguna sem Kristni; á þessum tíma blasti önnur sundrun við, þegar Vestur-Asískir hófu innrásir í Evrópu eftir þrem leiðum, sem var "Catalysti" fyrir þá niðurstöðu sem sæzt var á.

Hægt er að einfalda þessa útgáfu, en það krefst lengri færslu. Hitt er annað, að fimm öldum síðar innféllu Kínverskar, Indverskar, og Vestur-Asískar siðmenningar unnvörpum, fyrir árás manns sem er einn mest djöflamerkti leiðtogi allra tíma - maður sem var klárlega ekki það sem hann er brennimerktur fyrir, en aftur krefst það lengri einföldunar - svo vitnað sé í Austur-Herúlann Tómas Jónasson (Temujin) "ég er refsivöndur Guðs, ef þið væruð ekki án iðrunar og yfirbótar, hefði ég aldrei gerzt."

Bíddu nú við, allar þær siðmenningar sem innféllu og gátu ekki staðist gegn stormi Tómasar, höfðu ánetjast Nýplatónisma, og sé hugmyndamengi þeirra sem gátu stöðvað hann við mörk Egypta og Magyara; það voru SIÐmenningar sem hafnað höfðu Platónisma með öllu.

Hægt er að nota þetta sniðmát fyrir nærfellt alla þekkta Sögu, um alla veröld hinna sjö sýna

Þér er ekki sagt frá því, af -elítunni- sem tekið hefur sér guðdómleg völd yfir hugsun þinni og einkalífi, en Tómas var bæði rauhærður og bláeygður: lygar og galdrabrennur Miðalda[platónismans] hafa endurholdgazt.

Eitt af því sem hér er áhugavert, að sú heimspeki sem notuð var sem móteitur Platónismans, var lærifaðir Alexanders, en sú speki ekki aðeins lagði Persa- og Egyptaveldi að fótum Hellena, heldur byggði nýja speki sem stóð af sér næstu þrjár til fjórar aldir (og sitraðist inn í tvenn ný heimsveldi sem stóðu enn lengur), og það svo rækilega að Skólaspekin (Scholasticism) var síðar byggð til hálfs úr henni og notuð sem grunnur að þver-evrópskum SIÐ í allt að ellefu aldir. Frum- og heimspeki sú sem hér er að ýjað er nærri því bönnuð í samtímanum (í bezta falli niðurlægð), en hún er þekkt, og margt bendir til að hún muni eiga séns í þriðja sinn; svo sem sjá má í mörgu sem er að gerast í rækilega-þögguðum grasrótum um alla veröld þessi misserin.

Við segjum "margt bendir til" því við Heidegger erum sammála um að áttunda sýnin sé við sjónarröndina og útilokað sé að sjá fyrir hvernig næstu tíu til fimmtán aldir verða, hvað hugsun og speki varðar.

Verulega áhugavert að fylgjast meðessuöllu.

Vissir þú að Kleópatra Sesars og Antoníusar, var sjöunda, og að dóttir hennar, Kleópatra áttunda er einn virtasti stjórnvitringur aldanna, og að þær voru af þeim skóla sem ýjað er að?

Heimsendirinn - eða Epokinn mikli - sem spáð var fyrir, kláraðist kringum 1975. Þá höfðu innsiglin sjö verið opnuð á rúmu tíu ára bili, og fengu þau fjóra áratugi til að vinna verks sitt á vitund allra, manna og djinna, fram til 2016. Að allt raunsæi gufaði upp 2019 - eða náð raunsæis fjarlægð - er hluti þessa, svo og að leiðtogi ljósenglanna sjö var fangaður og vistaður 2014 (en reynt var með afbrigði af Blue Fusion fræðunum að losa prísundina 2020 til 2021 sem virðist hafa misheppnast). Við erum að upplifa stórfenglegustu umbreytingar á tímarásinni síðan á dögum Nóa og þá síðan á dögum Evu.

Þegar maður skilur þetta, skilst vægi þess að fleygja sér á grúfu í mölina og þjálfa sig í lyklunum fjórum, Bæn, Iðrun, Vitnisburði, Fyrirgefningu.

Markarvölur eru hollur félagsskapur.

Við erum sköpuð ábyrg fyrir eigin sál, í helgu formi manns, á heimili sem hvorki við getum yfirfyllt né breytt loftslagi þess. Við erum ekki gerð til að gera Vald, Félag og Efni að "kerfum" og "tilbeiðslu" heldur til að lifa lífinu virk og skapandi, af viti, en við vitum ekki lengur hvað vit er.

Þegar ég var fjórtán ára, stríddi frænka mín sínum þáverandi, með túlkun á hvað nafn hans, Jón, merkti. Það tók mig fjóra áratugi að finna út hvað orðið merkir - sýn og vilji - og gerði lista yfir öll þau orð sem hafa "jó" sem aðalhlð, og undraðizt hversu mörg þau voru eru. Á þeim tíma var ég að byrja að átta mig á katalysma Herúlans hvar sem hann drepur niður fæti, og áráttu Meitlaraklúbbanna að útrýma því hreina geni. 

Ég fyrirlít ekki Íslenska arfleifð, þó ég skrifi og tala þannig, ég fyrirlít þau afstyrmi sem halda að þau séu Íslenzk en eru það ekki, því við sjáum ekki [lengur] styrk okkar og vægi, og við sárafáu sem höldum okkur sjá það, náum ekki tangarhaldi nema rétt milli svefns og vöku.

Loginn blaktar [enn] í blæ hræsninnar.

 

Flestu hér hefur löngu verið verið gerð ítarlegri skil í Arkívinu. Þú manst að bannað er að taka mark á Spennulosun!