3.7.2026 kl. 13:54

Gervigreindarvonin

Marxistar - trúa á Efnistengda raungusegð* (Dialectical Materialism) - þó Marxismi sé sjaldan nefndur á nafn undanfarna tvo áratugi þá kemstu ekki í gegnum neitt langskólanám án þess að vera [bókstaflega] heilaþveginn af þessari baneitruðu hugmyndafræði, sem á meira skylt við gelda sálfræði en nokkra heimspeki.

Allir þeir sem trúa í einhverju formi á Efnishyggju (eða Efnistengda heimsmynd) trúa á útdregna (Abstract) sefjun þess Platónisma að allt megi reikna út, allt megi setja í reglu, að ekki sé minnst á reglugerð og hyggjan er svo flöt og geld að hún gleymir að tengja reglugerðina við lög (eins og á að vera) og trúir aukinheldur að nóg sé að að kjósa með 51 % meirihluta [á vélrænu spilltu þingi] til að lög séu lögmæt.

Slíkir loka félagsaðgangi og bankareikningum fólks sem er þeim ósammála, ofsækja og djöflamerkja (Demonize) þá sem gagnrýna flatneskju þeirra, og þegar þeir fá völdin, kaffæra alla eðlilega þróun innan samfélaga og menningarhópa, og nota fjölmiðla til að ljúga til um allan pakkann.

Þetta er nákvæmlega það sem við höfum lifað við, undanfarna tvo áratugi, í sjálfumgleði og sinnuleysi (Condescending Apathy): slík, dáin menning, hópast í sprautuklefana á lífshættulegum rafbílum, fróandi sér á gervigreindar öppum snjallskjásins.

Þegar raungusegða og efnishyggju fólk stjórnar Þjóðfélaginu, og þeim samfélögum sem það samanstendur af; birtist steikt heilasteypa af því tagi sem tengd "frétt" dregur fram. Að þeir sem nú stjórna okkar innföllnu (Imploded) siðmenningu, trúa á eigin röksemdafærslu og óveruleikatengda útreikninga.

Eins og eikkur sagði - it is hillarious!

Þess vegna mæli ég með eftirfarandi; við kjósum já við ESB - Ísland er dáið, ESB í dauðateygjunum, og það hraðar útförinni að fara alla leið framaf; því fyrr sem jarðarförin gerist, því fyrr fæðist aftur lifandi menning í landinu og hver veit, rís dafnandi siður.

Stundum er betra að fara alla leið inn í drullusýkið, en að pússa annan og pissa í hinn.

 

* Raungusegð (Dialectics) er í fúskorðabókum Íslenskra Marxista nefnd Þráttunarhyggja (sem mætti vera Þráttunarröskun), okkar útgáfa merkir "sé skyrtu snúið á raunguna venzt hún" en hið síðara sem bóktaflega merkir "þrætu-orðræða" skilar sér illa. Minn tók upp hið fyrra, því það skilar sér betur í samræðum við fólk.

 

 

Svo við vitnum í frétt Íslenska Musteris Ríkisins:

"... átti að auka starfsánægju og lífsgæði ..."

Ríkið á að gera þig hamingjusaman?

Ef það er Musteri Almættisins! ... eða telur sig vera það.

Költ Títanska Demíörgsins ...